“Hvað kostar bílpróf? Hvað má maður vera gamall til að byrja læra á bíl?”
Hér má finna svör við algengum spurningum sem varða bílpróf og ökupróf.
Ég heiti Guðjón Ó. Magnússon og hef verið ökukennari síðan 1998 og bíð upp á ökukennslu á góðu verði.
Bílpróf verð: Hvað kostar ökupróf?
Einn ökutími hjá mér kostar 11.900 kr en heildarkostnaður fyrir allt námið fer eftir því hversu marga ökutíma þú tekur. Þó að lágmarki 16 tímar.
Bíll í ökuprófi kostar 12.500 kr + prófið sjálft sem kostar 10.900.
Skriflegt ökupróf kostar 4.000 kr.
Ég fer betur yfir allan kostnað í Verðskrá Ökukennsla.
Bílpróf á sjálfskiptan bíl
Frjálst val er um að læra á sjálfskiptan bíl og taka próf á slíkan bíl með takmörkun í ökuskírteini. Ekki þarf lengur heilbrigðisástæður til þess. Sá sem velur þennan kost fær tákntöluna 78 í ökuskírteinið sem takmarkar ökuréttindin við sjálfskiptan bíl.
Ég er með tvo bíla fyrir ökukennslu og get kennt á bæði sjálfskiptan og beinskiptan bíl.
Bílpróf aldur
Hvað má maður vera gamall til að læra á bíl?
Ökunám má hefjast við 16 ára aldur og þú mátt taka bóklega prófið 2 mánuðum áður en þú verður 17 ára, og verklega prófið hálfum mánuði fyrir afmælisdaginn.