Sérstakt námskeið
Sérstakt námskeið á vegum Umferðarstofu verður í boði í hjá Ökuskóla Kopavogs. Uppl. í síma 615 1115.
Endurtektarpróf – endurheimt ökuréttindi
Ef líða meira en tvö ár frá því að ökuskírteini rennur út, missir viðkomandi réttindin sín og þarf þá að fara aftur í ökupróf, til að öðlast ökuréttindi á ný.
Ef viðkomandi er sviptur ökuréttindum sínum í meira en eitt ár þarf hann að fara aftur í ökupróf, bæði bóklegt og verklegt til að öðlast ökuréttindi á ný.
Hafir þú lent í því að missa réttindin þín er réttast fyrir þig að byrja að hafa samband við mig og sækja svo um próftökuheimild til lögreglustjóra eða sýslumanns. Ég get bent á og útvegað námsefni fyrir bóklega prófið, en það er ekki skylda að fara í ökuskóla sé verið að endurheimta ökuréttindi. Að loknu bóklegu prófi þarftu að taka nokkra tíma hjá mér til að undirbúa þig undir verklega ökuprófið.
Ef sótt um endurnýjun, endurveitingu eða skipti á erlendu ökuskírteini er eftirfarandi eyðublað fyllt út aður en farið er til Sýslumanns:
http://www.logreglan.is/upload/files/Umsokn%20um%20endurveitingu_1.pdf